Fara í innihald

Ormaveiki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Ormaveiki er sýking af völdum ýmissa tegunda bandorma, flatorma eða þráðorma. Húsdýr jafnt og villtar tegundir geta verið haldnar ormaveiki, og er maðurinn engin undantekning. Á Íslandi hefur ormaveiki oft gert usla í sauðfjárræktinni. Þannig valda iðraormar skitupest sem magnast þegar fé er illa fóðrað. Ormalyf gegn þeim kom til sögunnar á fjórða áratug 20. aldar. Lungnaormar valda hins vegar vanþrifum í fé. Ormalyf eru einnig notuð gegn þeim. Sem dæmi um sýkil má nefna sullaveikibandorminn.