Auður Capital

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Auður Capital var íslenskt fjármálafyrirtæki sem var stofnað árið 2007. Stofnendur þess voru Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir. Fyrirtækið var í meirihlutaeigu stofnenda, starfsmanna og athafnakvenna. Auður hafði starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfaði undir eftirliti FME.

Árið 2014 sameinuðust Auður Capital og Virðing hf undir nafni Virðingar. Árið 2017 keypti bankinn Kvika Virðingu og hefur notað vörumerkið Auði yfir tiltekna fjármálaþjónustu á netinu.

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

  Þessi fyrirtækjagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.