Fara í innihald

Pottaska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá K2CO3)

Pottaska (K2CO3) er efnasamband Kalíns og karbónats. Pottaska hefur frá fornu fari verið notuð til að búa til gler og sápu og í tilbúinn áburð. Nafnið vísar til þess að efnið var unnið úr viðarösku. Pottaskan hefur þrjú nöfn samkvæmt gömlum bókum: Alkali, lútarsalt og pottaska.

Pottaska er víða í gömlum uppskriftum. Stundum hefur hún verið notuð í stað lyftidufts. Einnig var hægt að nota hana til að koma í veg fyrir að mjólk ysti, eða eins og segir í gömlu húsráði:

Ef mjólk ysti við suðu, var látið dálítið af hreinsaðri pottösku í mjólkina og hún soðin nokkra stund og hrært vel í pottinum, þá losnaði draflinn í sundur og mjólkin varð jafngóð aftur.

  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.