Ísland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ísland
SjónvarpsstöðRíkisútvarpið (RÚV)
Ágrip
Þátttaka35 (27 úrslit)
Fyrsta þátttaka1986
Bestu úrslit2. sæti: 1999, 2009
Tengt efni
Söngvakeppnin
Tenglar
Vefsíða RÚV
Ísland á Eurovision.tv Edit this at Wikidata

Ísland hefur tekið þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 36 sinnum síðan að frumraun landsins í keppninni átti sér stað árið 1986. Ísland tók ekki þátt í keppninni árin 1998 og 2002 eftir að hafa fallið úr keppninni ári fyrr. Framlög Íslands eru að venju valin með Söngvakeppninni.

Jóhanna Guðrún flytur lagið „Is It True?“ í Moskvu (2009)

Saga[breyta | breyta frumkóða]

Ísland tók fyrst þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1986. Áhugi hafði verið fyrir þátttöku í keppninni í mörg ár og hún hafði verið sýnd í beinni útsendingu frá árinu 1983, en beðið var eftir því að Ríkisútvarpið hefði efni á því að halda keppnina.

Besti árangur Íslands í keppninni er annað sætið en því takmarki var náð árin 1999 og 2009. Árið 1999 tók Selma Björnsdóttir þátt fyrir hönd Íslandi með lagið „All Out of Luck“ sem fékk 146 stig. Árið 2009 tók Jóhanna Guðrún Jónsdóttir þátt fyrir hönd Íslands með lagið „Is It True?“ sem að hlaut 218 stig, en sigurlagið „Fairytale“ eftir Alexander Rybak var með 169 fleiri stig.

Versti árangur Íslands var árið 1989 þegar Daníel Ágúst Haraldsson fékk engin stig fyrir lagið „Það sem enginn sér“. Oft þegar vísað er til lagsins er það kallað „Það sem enginn heyrði.“ Fram að þessu er þetta eina framlag Íslendinga sem hefur ekki fengið eitt einasta stig. Árið 2001 lenti hljómsveitin Two Tricky í síðasta sæti með aðeins þrjú stig þegar þeir fluttu lagið „Angel“.

Árið 2004 var undanúrslitakeppni fyrst notuð í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og komst Ísland sjálfkrafa áfram það ár vegna velgengni Birgittu Haukdal í keppninni árið áður þegar hún lenti í áttunda sæti með 81 stig. Vegna þess að Ísland lenti fyrir utan topp tíu sætanna það árið þurfti það að keppa í undanúrslitum árin 2005, 2006 og 2007 en komst aldrei áfram. Árið 2008 var reglunum breytt og hafa allir þáttakendur fyrir utan Ítalíu, Bretland, Frakkland, Þýskaland, Spán og sigurlandið frá árinu áður þurft að taka þátt í undanúrslitum. Eftir það komst Ísland upp úr undankeppninni allt til ársins 2014 en ekki árin 2015, 2016, 2017 og 2018. Í heild sinni er Ísland annað sigursælasta land keppninnar sem á eftir að vinna, næst á eftir Möltu.

Fjöldi söngvara hefur keppt oftar en einu sinni fyrir hönd Íslands, þar á meðal Sigríður Beinteinsdóttir sem að hefur farið fjórum sinnum (tvisvar í tvíeyki, einu sinni sem sólóisti og einu sinni sem bakraddasöngkona). Stefán Hilmarsson hefur farið þrisvar fyrir hönd Íslands (í tvíeyki árin 1988, 1991 og einu sinni sem bakraddasöngvari árið 1999) og sama á við Selmu Björnsdóttir (sem sólóisti árin 1999 og 2005), Eirík Hauksson (í tríói árið 1986 og sem sólóisti árið 2007), Jónsa (sem sólóisti árið 2004 og í tvíeyki árið 2012), Friðrik Ómar (í tvíeyki árið 2008 og sem bakraddasöngvari árið 2009), Heru Björk (sem bakraddasöngkona árin 2009 og 2015, og sem sólóisti árin 2010 og 2024) og Regínu Ósk (sem bakraddasöngkona árið 2003 og í tvíeyki árið 2008).

Yfirlit þátttöku[breyta | breyta frumkóða]

Merkingar
1 Fyrsta sæti
2 Annað sæti
3 Þriðja sæti
Síðasta sæti
Framlag valið en ekki keppt
Ár Flytjandi Lag
Lag (L) og texti (T)
Tungumál Úrslit U.úrslit
Sæti Stig Sæti Stig
1986 ICY Gleðibankinn
L/T: Magnús Eiríksson
íslenska 16 / 20 19 Engin undankeppni
1987 Halla Margrét Hægt og hljótt
L: Valgeir Guðjónsson
íslenska 16 / 22 28
1988 Beathoven Þú og þeir (Sókrates)
L/T: Sverrir Stormsker
íslenska 16 / 21 20
1989 Daníel Ágúst Það sem enginn sér
L/T: Valgeir Guðjónsson
íslenska 22 / 22 0
1990 Stjórnin Eitt lag enn
L: Hörður G. Ólafsson; T: Aðalsteinn Ásberg Ásgeirsson
íslenska 4 / 21 124
1991 Stefán & Eyfi Draumur um Nínu
L/T: Eyjólfur Kristjánsson
íslenska 15 / 22 26
1992 Heart 2 Heart Nei eða já
L: Friðrik Karlsson, Grétar Örvarsson; T: Stefán Hilmarsson
íslenska 7 / 23 80
1993 Inga Þá veistu svarið
L: Jon Kjell Seljeseth; T: Friðrik Sturluson
íslenska 13 / 25 42 Kvalifikacija za Millstreet
1994 Sigga Nætur
L: Friðrik Karlsson; T: Stefán Hilmarsson
íslenska 12 / 25 49 Engin undankeppni
1995 Björgvin Halldórsson Núna
L: Björgvin Halldórsson, Ed Welch; T: Jón Örn Marinóson
íslenska 15 / 23 31
1996 Anna Mjöll Sjúbídú
L/T: Anna Mjöll Ólafsdóttir, Ólafur Gaukur Þórhallsson
íslenska 13 / 23 51 10 / 29 59
1997 Páll Óskar Minn hinsti dans
L: Páll Óskar, Trausti Haraldsson; T: Páll Óskar
íslenska 20 / 24 18 Engin undankeppni
1998 Tók ekki þátt
1999 Selma Björnsdóttir All Out of Luck
L: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson; T: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
enska 2 / 23 146 Engin undankeppni
2000 Einar Ágúst & Telma Tell Me!(„Hvert sem er“)
L: Örlygur Smári; T: Örlygur Smári, Sigurður Örn Jónsson
enska 12 / 24 45
2001 Two Tricky Angel(„Birta“)
L: Einar Bárðarson, Magnús Þór Sigmundsson; T: Einar Bárðarson
enska 22 / 22 3
2002 Tók ekki þátt
2003 Birgitta Haukdal Open Your Heart(„Segðu mér allt“)
L: Birgitta Haukdal; T: Hallgrímur Óskarsson
enska 8 / 26 81 Engin undankeppni
2004 Jónsi Heaven(„Himinn“)
L: Sveinn Rúnar Sigurðsson; T: Magnús Þór Sigurðsson
enska 19 / 24 16 Topp 11 árið fyrr[a]
2005 Selma Björnsdóttir If I Had Your Love
L:Þ. Þorvaldsson, Vignir Vigfússon; T: Selma Björnsdóttir, Linda Thompson
enska Komst ekki áfram 16 / 25 52
2006 Silvía Nótt Congratulations(„Til hamingju Ísland“)
L: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
enska 13 / 23 62
2007 Eiríkur Hauksson Valentine Lost(„Ég les í lófa þínum“)
L: Sveinn Rúnar Sigurðsson; T: Peter Fenner
enska 13 / 28 77
2008 Eurobandið This Is My Life(„Fullkomið líf“)
L: Örlygur Smári; T: Páll Óskar, Peter Fenner
enska 14 / 25 64 8 / 19 68
2009 Jóhanna Guðrún Is It True?
L/T: Óskar Páll Sveinsson, Chris Neil, Tinatin
enska 2 / 25 218 1 / 18 174
2010 Hera Björk Je ne sais quoi
L/T: Örlygur Smári, Hera Björk
enska, franska 19 / 25 41 3 / 17 123
2011 Vinir Sjonna Coming Home(„Aftur heim“)
L: Sigurjón Brink; T: Þórunn Erna Clausen
enska 20 / 25 61 4 / 19 100
2012 Greta Salóme & Jónsi Never Forget(„Mundu eftir mér“)
L/T: Greta Salóme
enska 20 / 26 46 8 / 18 75
2013 Eyþór Ingi Ég á líf
L/T: Örlygur Smári, Pétur Örn Guðmundsson
íslenska 17 / 26 47 6 / 17 72
2014 Pollapönk No Prejudice(„Enga fordóma“)
L: Heiðar Örn Kristjánsson; T: Heiðar Örn Kristjánsson, Haraldur Freyr Gíslason, John Grant
enska 15 / 26 58 8 / 16 61
2015 María Ólafsdóttir Unbroken(„Lítil skref“)
L: Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson; T: Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson, María Ólafsdóttir
enska Komst ekki áfram 15 / 17 14
2016 Greta Salóme Hear Them Calling(„Raddirnar“)
L/T: Greta Salóme
enska 14 / 18 51
2017 Svala Paper(„Ég veit það“)
L: Svala Björgvinsdóttir, Einar Egilsson, Lester Mendez, Lily Elise; T: Svala Björgvinsdóttir, Lily Elise
enska 15 / 18 60
2018 Ari Ólafsson Our Choice(„Heim“)
L/T: Þórunn Erna Clausen
enska 19 / 19 15
2019 Hatari Hatrið mun sigra
L/T: Hatari
íslenska 10 / 26 232 3 / 17 221
2020 Daði og Gagnamagnið Think About Things(„Gagnamagnið“)
L/T: Daði Freyr
enska Keppni aflýst[b]
2021 Daði og Gagnamagnið 10 Years
L/T: Daði Freyr
enska 4 / 26 378 2 / 17 288
2022 Systur Með hækkandi sól
L/T: Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir
íslenska 23 / 25 20 10 / 17 103
2023 Diljá Power(„Lifandi inní mér“)
L/T: Diljá, Pálmi Ragnar Ásgeirsson
enska Komst ekki áfram 11 / 16 44
2024 Hera Björk Scared of Heights(„Við förum hærra“)
L/T: Ásdís María Viðarsdóttir, Michael Burek, Jaro Omar, Ferras Alqaisi
enska 15 / 15 3

Tölfræði atkvæðagreiðslu[breyta | breyta frumkóða]

Tölfræði atkvæðagreiðslu í Eurovision frá 1986 til 2021.

Lönd sem Ísland hefur gefið flest stig:

Sæti Land Stig
1 Fáni Svíþjóðar Svíþjóð 230
2 Fáni Danmerkur Danmörk 198
3 Fáni Noregs Noregur 152
4 Fáni Frakklands Frakkland 116
5 Fáni Finnlands Finnland 98

Lönd sem hafa gefið Íslandi flest stig:

Sæti Land Stig
1 Fáni Svíþjóðar Svíþjóð 137
2 Fáni Noregs Noregur 130
3 Fáni Danmerkur Danmörk 128
4 Fáni Bretlands Bretland 100
5 Fáni Finnlands Finnland 84

Stigakynnar og þulir RÚV[breyta | breyta frumkóða]

Forsöngur, höfundur/ar og bakraddir[breyta | breyta frumkóða]

Athugasemdir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Samkvæmt þáverandi reglum Eurovision komust öll topp-10 löndin, ásamt „Stóru Fjóru“ löndunum, sjálfkrafa áfram í úrslit næstkomandi ár. Sem dæmi, ef Þýskaland og Frakkland væru innan topp-10 sætanna, fengju löndin í ellefta og tólfta sæti pláss í úrslitunum árið eftir með þeim löndum sem voru líka innan topp-10.
  2. Keppnin árið 2020 var aflýst vegna COVID-19 faraldursins.

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Sólrún Dögg Jósefsdóttir (17. apríl 2024). „Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix“. Vísir. Sótt 29. apríl 2024.

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]