Heimsmetabók Guinness
(Endurbeint frá Guinness World Records)
Land | Bretland |
---|---|
Tungumál | 37 |
Útgefandi | Jim Pattinson Group |
Útgáfudagur | 1955–í dag |
Heimsmetabók Guinness (e. Guinness World Records) er uppsláttarrit um heimsmet sem er gefið út árlega. Í því má finna met sem eru sett af afrekum fólks og af umhverfinu. Bókin var stofnuð af bræðrunum Norris og Ross McWhirter í London árið 1955. Hún var upphaflega gefin út í Bretlandi, svo alþjóðlega árið eftir. Síðan þá hefur hún verið seld í 100 löndum og þýdd á yfir 35 tungumál. Gagnagrunnurinn fyrir bókina inniheldur yfir 50.000 met. Hún var fyrst gefin út á íslensku árið 1977 og var ritstýrð af Örnólfi Thorlacius.[1]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ „Metabók Guinness í fyrsta sinn á íslensku“. Þjóðviljinn. 13. ágúst 1977. bls. 16.